20.11.06

Helgarblogg

Það var gaman að hitta skólasystkinin mín úr Rafiðnaðarskólanum á föstudaginn. Við hittumst heima hjá Einari Má sem tók af skarið og ákvað að nú væri tími til kominn að hittast. Þetta er einstaklega skemmtilegur hópur, mikið hlegið og skrafað.
Við vorum 11 sem byrjuðum haustið 2001 í námi í Rafiðnaðarskólanum sem kallaðist “Ertu kennari og viltu verða tölvukennari?” Flestum okkar fannst námið mjög erfitt, kunnum ekkert á tölvu og farið var mjög hratt yfir efnið. Það voru tveir “nördar” í bekknum sem höfðu kennt á tölvur og ég sat hjá örðum þeirra. Hún kom of seint í fyrsta tímann og sá laust sæti á fremsta borði og flýtti sér að setjast þar. Ég naut góðs af því að hafa Dóru við hliðina á mér. Við vorum í skólanum fjóra daga vikunnar og stundum hittumst við á laugardögum, ef eitthvað sérstakt vafðist fyrir okkur. Eins og áður sagði var þetta yndislegt fólk og skemmtilegur tími þó oft fengi maður svitakast af stressi yfir einhverju sem lá alls ekki ljóst fyrir. Einn félagi okkar Þorsteinn Sveinsson varð bráðkvaddur við kennslustörf tveimur árum eftir að við hættum í skólanum. Það var hræðilega sorglegt og var hans sárt saknað á föstudagskvöldið.

Ég heyrði í Guðnýju minni á föstudag og líka í gærkveldi. Hljóðið í henni er mjög gott. Fjölskyldan hennar er afskaplega góð við hana og þær eru góðar vinkonur “systurnar” þó að það sé þriggja ára aldursmunur á þeim. Diane faðmar hana að sér og lætur hana vita hvað henni þykir vænt um hana. Það á nú vel við mína sem þarf á mikilli hlýju og snertingu að halda.
Hún fór með mömmu sinni og systur til Mílanó á laugardaginn og þar hittu þær 19 ára frænda. Saman fóru þau í fallegan kastala. Í turninum eru geymd verk eftir Michelangelo. Turninn er jafnan lokaður almenningi en vörðurinn var svo almennilegur við þau og leyfði þeim að fara upp í turninn. Það var m.a. af því það var Íslendigur í hópnum. Guðný mín hafði gleymt vettlingunum sínum heima (gleymin eins og mamman) og svo henni yrði ekki kalt á höndunum leiddu frændsystkinin hana á milli sín um götur borgarinnar.
Hún sagði mér frá því himinlifandi að hún fengi að fara í tveggja daga ferð til Parísar í febrúar með bekknum sínum. Tilgangur ferðarinnar er að skoða söfn.
Það stendur til að fjölskyldan fari til Tocana 8. – 10. desember en þá er frí í skólanum. Hún var mjög glöð þegar hún vissi að mamma hennar (þessi íslenska) var að baka smákökur til að senda henni fyrir jólin. Hnetusmjörskökurnar eru í uppáhaldi hjá henni og það er einmitt uppskrift frá "mömmu" minni í Bandaríkjunum. Ég var skiptinemi í USA tveimur árum eftir að Sjónvarpið hóf útsendingar í Reykjavík. Hvaða ár var það?

3 Viltu tjá þig?

At 20 nóvember, 2006 16:42, Blogger Guðrún said...

Ég tippa á 1967!!!

 
At 21 nóvember, 2006 11:05, Anonymous Sissa said...

Ég er svo fegin hvað þetta gengur allt vel hjá henni Guðnýju þinni...

 
At 21 nóvember, 2006 18:34, Blogger Sigga said...

Guðrún: Þetta er kannski handónýt spurning eða í anda samræmdu prófanna? Árið 1967 held ég vestur um haf, en kem heim 1968. 1966 hóf Sjónvarpið útsendingar í Rvík. Svarið við spurningunni átti að vera 1968. En þú færð samt 10 fyrir þítt svar.
Sissa: Ég er líka afskaplega fegin, mér myndi ekki líða vel ef hún væir óánægð. Sundum sakna ég hennar hrikalega...

 

Sendu inn athugasemd

<< Home