12.11.06

Hvað gerði ég í Kraká?

Ég heimsótti grunnskóla nr. 155 þar sem fjögur hundruð börn stunda nám. Þarna sannaðist að umbúðirnar skipta ekki máli heldur innihaldið.

Ég heimsótti virðulega menntastofnun í miðborg Kraká í húsi sem byggt var á nítjándu öld. Skólinn var stofnaður á sextándu öld. Í honum eru nemendur á aldrinum 15 -18 ára. Þar söng fyrir mig (og félaga mína) hluti af skólakórnum sem annars telur hundrað nemendur. Þvílíkur hljómur í kórnum. Myndarlegur rektor sem var afar stoltur af skólanum gaf mér hljómdisk með kórnum (og hinum líka). Þessir tveir skóla sem við heimsóttum ku vera þeir bestu í Kraká ef ekki í öllu landinu.

Í Ráðhúsinu hlutstaði ég á tölu, á pólsku og ensku, um menntastefnu Póllands og hvernig kennaramenntuninni er háttað. Skildi enskuna snöggt um betur en pólskuna.

Ég gekk oft um aðaltorgið í leit að veitingastöðum, skoðaði í búðarglugga, fór á markaðinn og dáðist að fallegu Maríukirkjunni, hlustaði á trompetleikarann spila fimm tóna í hádeginu. Gekk framhjá Adalbertkirkjunni og gamla ráðhústurninum sem stóð þarna einn og yfirgefinn. Ég tók myndir, hoppaði óvart í polla, hljóp á eftir hattinum mínum sem fleytti kellingar eftir öllu torginu.

Ég skundaði nokkrum sinnum í mollið Galeria Krakowska sem er alveg nýtt af nálinni. Þar gekk ég um, skoðaði, handfjatlaði, drakk kaffi, skoðaði, handfjatlaði og borgaði. Heimsóknin í Wieliczka saltnámurnar var toppurinn á ferðinni. Mannvirkin og listaverkin sem verkamennirnir unnu í frístundum sínum langt undir yfirborði jarðar eru engu lík. Ég gekk niður 400 tröppur og var þá komin 135 m undir yfirborðið. Af níu hæðum niður fór ég þrjár. Námurnar eru á 350 km löngu svæði undir bænum. Ég (og hinir í hópnum) gengum minna en 1% af öllu þessu flæmi eða um 2.5 km.

Labbaði að hluta um gyðingahverfið, fann indverska veitingastaðinn sem ég ætlaði á fyrsta kvöldið en fann ekki, en endaði þá á kínverskum stað. Seinna borðaði ég í gyðingahverfinu á uppáhaldsveitingastaðnum hans Steven Spielbergs sem heitir Arial hann er líka þekktur fyrir gyðingabandið sem þar spilar fyrir gesti.

Gekk upp á Wawel hæðina að kastalanum og horfði yfir borgina þó skyggnið væri ekki gott. Kirkjan sem ég ætlaði að skoða var lokuð (kl.15:00).

Gekk “Laugarveginn” þar sem listaverkasalar hreiðra um sig.

Borðaði góðan mat á hverjum degi á góðum og fallegum veitingastöðum.

Tók leigubíla sem kostuðu hlægilega lítið.

Naut þess í botn að vera í fríi í fallegri borg með skemmtilegu fólki og þá sérstaklega manninum mínum.

 Posted by Picasa

0 Viltu tjá þig?

Sendu inn athugasemd

<< Home