Hvað kom mér á óvart í Kraká?
Hve fólkið var almennilegt.
Konurnar grannar, fallegar og vel klæddar.
Fjöldi búða með fallegum fötum, skóm og töskum.
Ódýr og góður matur.
Falleg borg sem virðist hafa sloppið vel frá öllum þeim hörmungum sem dunið hafa á Póllandi í gegnum aldirnar.
Fallegar byggingar.
Niðurgrafnir kjallarar undir húsum þar sem voru t.d. flott veitingahús.
Allt of mörg ljót skilti.
Skemmtilegar bókabúðir.
Kaffið unaðslegt.
Pólski bjórinn góður.
Hve Pólverjar eru hrifnir af kökum (munnbitakökum).
Gestrisni.
Fjöldi kirkna.
Lítið um útigangsfólk.
Liturinn á húsum, gömlum sem nýjum (hélt að grár litur væri mest áberandi).
Fólk virtist hafa það bærilega gott. Kannski er ekki allt sem sýnist.
Sigríður Guðnadóttir 
1 Viltu tjá þig?
Tók eftir öllu þessu nema kannski skiltunum og fór heldur ekki í bókabúð. Varðandi lífskjörin held ég að við höfum verið á ,,réttum stað". Víða úti um landi í Póllandi eru kjörin afar bág.
Sendu inn athugasemd
<< Home