21.11.06

Skrítinn þessi dagur...

...ég hendist til Reykjavíkur í erindagjörðum sem mér hefði ekki dottið í hug að ég þyrfti að vera að standa í.

Í Reykjavík hitti ég Steingerði sem kom óvænt suður í atvinnuviðtal. Það gekk vel, en þeir gátu þó ekki sagt henni hvað þeir ætluðu að borga í laun! Skömmu síðar ókum við hjónin um Reykjavíkurstræti með Steingerði, Helgu Jónu og mömmu í aftursætinu. Önnur stelpan kvartar yfir verk í maganum og hin yfir hita í bílnum, fyrirferðarmikilli úlpu og maga (enda farið að sjást harla mikið á stúlkunni). Þegar ég leit aftur í bílinn minntist ég margra ökuferða ... með mömmu og stúlkurnar tvær í aftursætinu.

Ég hentist ein af stað úr Reykjavík í tæka tíð til að ná fundi sem ég var boðuð á kl. 18:00 og enn sit ég hér upp í skóla og bíð og klukkan orði 19:00. Þeir ætla ekki að koma kapparnir. Ég nenni ekki að ergja mig á þessu, en er samt eilítið spæld.

Nú skunda ég heim til Gam sem var bara ánægð í skólanum í dag, þegar ég talaði við hana í símann áðan. Hún er farin að tala pínu íslensku.

Og svo er það kóræfing á eftir...gaman að æfa jólalögin.

3 Viltu tjá þig?

At 21 nóvember, 2006 22:31, Anonymous sissa said...

Flott er hún alltaf stelpan...en flottust ólétt! Ég samgleðst þeim innilega...

 
At 23 nóvember, 2006 16:26, Anonymous Ole Asbjørn Hansen said...

Kære Sigga.

Hun ser sgu godt ud, og sikke hun ligner dig!!
Kærligst
Ole

 
At 04 desember, 2006 13:45, Anonymous Nafnlaus said...

Haehae mamma min!
Hvernig vaeri ad koma med eitt stk. nytt blogg..bara fyrir mig!
Eg veit ad thu hefur mikid ad gera en thad tharf ekki ad vera langt!
Elska thig og sakna!
Thin dottir
Gudny

 

Sendu inn athugasemd

<< Home